Innkauparáð
INNKAUPARÁÐ
Ár 2003, fimmtudaginn 27. mars, var haldinn 4. fundur s. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.15. Viðstaddir voru: Hrólfur Ölvisson Haukur Leósson og Jóhannes Sigursveinsson. Jafnframt sat Sjöfn Kristjánsdóttir, forstjóri Innkaupastofnunar, fundinn. Fundarritari var Jónína H. Björgvinsdóttir.
Þetta gerðist:
1. Lagt fram bréf gatnamálastjóra frá 24. þ.m. um tilboð í lagningu Leirvogs- og Grafarvogsræsa. Samþykkti að taka tilboði Verktaka Magna ehf. að fjárhæð kr. 326.841.350. Gatnamálastjóri mætti á fundinn vegna málsins.
2. Jón Þorvaldsson, forstöðumaður tæknideildar Reykjavíkurhafnar, mætti á fundinn og kynnti dýpkun við Norðurgarð og viðhaldsdýpkun ennfremur sagði hann frá að tilboði Ítaks hf. hefði verið tekið í verkið.
3. Lagt fram bréf forstöðumanns Fasteignastofu frá 24. þ.m., þar sem lagt er til að farið verði í forval vegna lokaðs alútboðs á hönnun á byggingu tveggja deilda leikskóla í Staðarhverfi ásamt tillögu að auglýsingu. Innkauparáð samþykkti erindið. Jafnframt samþykkt að fara í alútboð á leikskóla við Stakkahlíð með sama hætti.
Fundi slitið kl. 12.55.
Hrólfur Ölvisson
Jóhannes Sigursveinsson Haukur Leósson