Innkauparáð - Fundur nr. 391

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2017, föstudaginn 3. febrúar var haldinn 391. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12.15. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson, Magnea Guðmundsdóttir og Börkur Gunnarsson. Auk þeirra sat Jóna Björg Sætran áheyrnarfulltrúi fundinn. Einnig sátu fundinn Eyþóra K. Geirsdóttir frá embætti borgarlögmanns, Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir og Hrólfur Sigurðsson frá innkaupadeild Reykjavíkurborgar

Fundargerð ritaði Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi eignasjóðs Reykjavíkurborgar dags. 1. febrúar sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Ponio ehf. í útboði nr. 13831 Perlan Öskjuhlíð – Milligólf 2. hæð. R16120126.

Samþykkt.

Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

2. Lagt fram erindi mannauðsdeildar  Reykjavíkurborgar dags. 1. febrúar sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Goodlifeme ehf. sem átti eina tilboðið sem barst í útboði nr. 13851 Heildstæð lausn fyrir hóp- og heilsueflingarverkefni fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar. R17010283.

Samþykkt.

Ragnhildur Ísaksdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

3. Lagt fram yfirlit innkaupadeildar Reykjavíkurborgar yfir verkefni innkaupadeildar f.h. skrifstofa og sviða í janúar 2017. R17010075.

Innkauparáð gerir ekki athugasemdir við framlagt yfirlit.

Fundi slitið kl. 12.44

Kjartan Valgarðsson [sign]

Magnea Guðmundsdóttir [sign] Börkur Gunnarsson [sign]

PDF útgáfa fundargerðar
Innkauparáð 3.2.2017 - Prentvæn útgáfa