Innkauparáð - Fundur nr. 369

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2016, föstudaginn 22. apríl var haldinn 369. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12:14. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson, Kristján Freyr Halldórsson og Börkur Gunnarsson. Auk þeirra sat Ásgerður Jóna Flosadóttir áheyrnarfulltrúi fundinn. Einnig sat fundinn Jóhanna E. Hilmarsdóttir frá innkaupadeild Reykjavíkurborgar. 

Fundarritari var Guðbjörg Eggertsdóttir. 

Þetta gerðist: 

1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 20. apríl sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf., í útboði nr. 13692 Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2016, Útboð 1 – Vestan Reykjanesbrautar. R16030131.

- Kl. 12:22 tekur Eyþóra K. Geirsdóttir frá embætti borgarlögmanns sæti á fundinum.

Samþykkt.

2. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 20. apríl sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf., í útboði nr. 13693 Malbiksyfirlagnir í Reykjavík 2016, Útboð 2 – Austan Reykjanesbrautar. R16030132.

Samþykkt.

3. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 19. apríl sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Drafnarfells ehf., í útboði nr. 13694 Fræsun malbiksslitlaga í Reykjavík 2016. R16030130.

Samþykkt.

Theodór Guðfinnsson tekur sæti á fundinum undir liðum 1-3.

Fundi slitið kl. 12:43

Kjartan Valgarðsson (sign)

Kristján Freyr Halldórsson (sign) Börkur Gunnarsson (sign)

 

PDF útgáfa fundargerðar
Innkauparáð 22.4.2016 - prentvæn útgáfa