Innkauparáð - Fundur nr. 361

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2016, föstudaginn 22. janúar var haldinn 361. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12:15. Viðstaddir voru Magnea Guðmundsdóttir, Dóra Magnúsdóttir og Börkur Gunnarsson. Auk þeirra sat Ásgerður Jóna Flosadóttir áheyrnarfulltrúi fundinn. Einnig sátu fundinn; Jón Pétur Skúlason frá embætti borgarlögmanns, Jóhanna E. Hilmarsdóttir og Hrólfur Sigurðsson frá  innkaupadeild Reykjavíkurborgar sem jafnframt ritaði fundargerð. 

Þetta gerðist: 

1. Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 12. janúar sl., varðandi heimild til fyrri framlengingar á verksamningi Hreinsitækni ehf., um eitt ár vegna hreinsunar gatna- og gönguleiða í Reykjavík 2014-2016, útboð I nr. 13140. R14020116.

Samþykkt

2. Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 12. janúar sl., varðandi heimild til fyrri framlengingar á verksamningi Hreinsitækni ehf., um eitt ár vegna hreinsunar gatna- og gönguleiða í Reykjavík 2014-2016, útboð II nr. 13141. R14020117.

Samþykkt

Björn Ingvarsson tekur sæti á fundinum undir liðum 1 og 2.

3. Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 20. janúar sl., varðandi heimild til samningskaupa án undangenginnar útboðsauglýsingar sbr. b. lið 22.   gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar, um uppbyggingu viðbyggingar við borgarbóka-safnið að Tryggvagötu 15. R16010079.

Samþykkt

Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

4. Lagt fram yfirlit innkaupadeildar Reykjavíkurborgar yfir verkefni innkaupadeildar f.h. skrifstofa og sviða í desember 2015. R15010074.

Innkauparáð gerir ekki athugasemdir við framlagt yfirlit.

Fundi slitið kl. 12:45

Magnea Guðmundsdóttir (Sign)

Dóra Magnúsdóttir (Sign) Börkur Gunnarsson (sign)

 

PDF útgáfa fundargerðar
Innkauparáð 22.1.2016 - prentvæn útgáfa