Innkauparáð - Fundur nr. 329

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2014, föstudaginn 19. september var haldinn 329. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 9:30. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson, Magnea Guðmundsdóttir og Elísabet Gísladóttir. Auk þeirra sat Ásgerður Jóna Flosadóttir áheyrnarfulltrúi fundinn. Einnig sátu fundinn Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur hjá embætti  borgarlögmanns, Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir deildarstjóri innkaupadeildar, Hrólfur Sigurðsson verkefnisstjóri innkaupadeild, Grétar Þór Jóhannsson verkefnisstjóri innkaupadeild, Ólafur Steingrímsson verkefnisstjóri innkaupadeild og Guðbjörg Eggertsdóttir innkaupadeild sem jafnframt ritaði fundargerð. 

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Velferðasviðs Reykjavíkurborgar dags. 4. september sl., varðandi beiðni um framhaldskaup á „Heimsendingu á mat – Akstur“ við Flutninga og þjónustu ehf til 3. mars 2016. R11050032.

Samþykkt.

Sigtryggur Jónsson þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða mætti á fundinn vegna málsins.

2. Lagt fram erindi Hreint ehf dags. 4. september sl., varðandi útboð nr. 13276 Ræsting og bónun Lindargötu 57-66. R14070010.

Innkauparáð óskar eftir umsögn embætti borgarlögmanns varðandi málið.

Fundi slitið kl. 9:54

Kjartan Valgarðsson (sign)

Magnea Guðmundsdóttir (sign) Elísabet Gísladóttir (sign)

PDF útgáfa fundargerðar
Innkauparáð 19.9.2014 - prentvæn útgáfa