Innkauparáð - Fundur nr. 327

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2014, föstudaginn 15. ágúst var haldinn 327. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12:17. Viðstaddir voru Magnea Guðmundsdóttir, Dóra Magnúsdóttir og Börkur Gunnarsson. Auk þeirra sat Ásgerður Jóna Flosadóttir áheyrnarfulltrúi fundinn. Einnig sátu fundinn Benedikt Hallgrímsson lögfræðingur hjá embætti borgarlögmanns og Guðbjörg Eggertsdóttir innkaupadeild sem jafnframt ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Frístundamiðstöðvarinnar Kringlumýri  dags. 13. ágúst sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Hreint ehf, sem átti eina tilboðið sem barst í útboði nr. 13295 Ræsting fyrir frístundamiðstöðina Kringlumýri og starfstaði hennar. R14070067.

Samþykkt.

Snorri Örn Arnaldsson og Haraldur Sigurðsson mættu á fundinn vegna málsins.

2. Lagt fram yfirlit umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar varðandi einstök innkaup yfir 1. m.kr. vegna 1. ársfjórðungs 2014. R14010098.

Innkauparáð gerir ekki athugasemdir við framlagt yfirlit.

3. Lagt fram yfirlit fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar - fjárstýringar varðandi einstök innkaup yfir 1. m.kr. vegna 1. og 2. ársfjórðungs 2014. R14010098.

Innkauparáð gerir ekki athugasemdir við framlagt yfirlit.

4. Lagt fram yfirlit innkaupadeildar yfir verkefni skrifstofa og sviða við deildina í júní og júlí 2014. R14010087.

Innkauparáð gerir ekki athugasemdir við framlögð yfirlit.

Fundi slitið kl. 12:42

Magnea Guðmundsdóttir (sign)

Dóra Magnúsdóttir (sign) Börkur Gunnarsson (sign)

PDF útgáfa fundargerðar
Innkauparáð 15.8.2014 - prentvæn útgáfa