Innkauparáð - Fundur nr. 321

Innkauparáð

INNKAUPARÁÐ

Ár 2014, föstudaginn 2. maí var haldinn 321. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12:15. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson, Diljá Ámundadóttir og Rúna Malmquist. Einnig sátu fundinn Eyþóra K. Geirsdóttir lögfræðingur á skrifstofu Borgarlögmanns, Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir deildarstjóri innkaupadeildar og Hrólfur Sigurðsson innkaupadeild sem jafnframt ritaði fundargerð. 

Þetta gerðist:

1. Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, skrifstofu framkvæmda- og viðhalds dags. 28. apríl sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, Fagverks verktaka ehf. í útboði nr. 13202 Malbiksviðgerðir 2014. R14030187.

Samþykkt.

2. Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, skrifstofu framkvæmda- og viðhalds dags. 29. apríl sl., þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, Tinnubergs ehf í útboði nr. 13203 Gangstéttaviðgerðir 2014. R14030188.

Samþykkt.

Magnús Haraldsson og Theodór Guðfinnsson skrifstofu framkvæmda- og viðhalds sátu fundinn við afgreiðslu mála 1 og 2.

3. Lagðar fram að nýju tillögur að breytingum á innkaupareglum Reykjavíkurborgar. Frestað á fundi þann 4. apríl sl.

Samþykkt og vísað til staðfestingar borgarráðs.

Fundi slitið kl. 12:27

Kjartan Valgarðsson (sign)

Diljá Ámundadóttir (sign) Rúna Malmquist (sign)

PDF útgáfa fundargerðar
Innkauparáð 2.5.'14 - prentvæn útgáfa