Innkauparáð
INNKAUPARÁÐ
Ár 2003, miðvikudaginn 8. október var haldinn 26. fundur s. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.10. Viðstaddir voru Hrólfur Ölvisson, Jóhannes Sigursveinsson og Haukur Leósson. Jafnframt sat Stefán Stefánsson frá Innkaupastofnun fundinn. Fundarritari var Jónína H. Björgvinsdóttir.
Þetta gerðist:
1. Lagt fram bréf framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs frá 7. þ.m. ásamt bréfi Innkaupastofnunar frá 6. s.m. um niðurstöðu forvals vegna alútboðs á bílakjallara að Laugavegi 86-94 ásamt byggingarrétti og endurgerð Laugavegar milli Snorrabrautar og Barónsstígs. Tillaga forvalsnefndar, um að gefa fimm aðilum kost á að taka þátt í útboðinu, samþykkt eftir kynningu og umræðu.. Yfirferð útboðsgagna frestað til mánudags. Gatnamálastjóri og framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs mættu á fundinn vegna málsins.
2. Rætt um innkaupamál stofnana borgarinnar. a) Bergur Felixson, framkvæmdastjóri og Hallur Símonarson fjárreiðustjóri Leikskóla Reykjavíkur mættu á fundinn.
b) Björn Ingi Sveinsson borgarverkfræðingur mætti á fundinn fyrir umhverfis- og tæknisvið.
Næsti fundur ákveðinn mánudaginn 13. október, kl. 8.15.
Fundi slitið kl. 13.20.
Hrólfur Ölvisson
Jóhannes Sigursveinsson Haukur Leósson