Innkauparáð - Fundur nr. 1646

Innkauparáð

STJÓRN INNKAUPASTOFNUNAR

Ár 2003, þriðjudaginn 28. janúar kl. 8:30 f.h., var haldinn 1646. fundur í stjórn Innkaupastofnunar að Fríkirkjuvegi 3. Viðstaddir voru auk forstjóra, Sjafnar Kristjánsdóttur: Stefán Jóhann Stefánsson formaður, Hrólfur Ölvisson, Steinar Harðarson, Kristján Guðmundsson og Guðlaugur Þór Þórðarson. Fundarritari var Guðbjörg Eggertsdóttir.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram að nýju bréf fjármálastjóra Reykjavíkurborgar, borgarbókara, borgarendurskoðanda og forstjóra Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, dags. 22. þ.m., varðandi tilboð í ytri endurskoðun fyrir Reykjavíkurborg, skv. lokuðu útboði. (Frestað á síðasta fundi stjórnar).

Einnig lagt fram að nýju álit borgarlögmanns, dags. 26. þ.m., varðandi málið.

Lagt fram að nýju bréf varaformanns stjórnar Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar dags. 24. þ.m., til Deloitte&Touche hf., ásamt bréfum Deloitte&Touche hf., til varaformanns stjórnar og AM Praxis lögfræðiþjónustu til Deloitte&Touche hf., bæði dags. 26. þ.m.

Lagt fram bréf Deloitte&Touche hf., til stjórnar Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, dags. 28. þ.m., varðandi málið.

Á grundvelli tillögu fjármálastjóra Reykjavíkurborgar, borgarbókara, borgarendurskoðanda og forstjóra Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, sbr. bréf dags. 22. þ.m., og áliti borgarlögmanns dags. 26. þ.m., var samþykkt með 4 atkvæðum gegn 1, að leggja til við borgarráð, að ganga til samninga við næstlægstbjóðanda Grant&Thornton ehf. Samningsupphæð kr. 45.500.000,- til 5 ára.

H.Ö. óskaði bókað: Það er mitt mat að taka eigi tilboði lægstbjóðanda, Deloitte&Touche hf.

Anna Skúladóttir mætti á fundinn vegna málsins.

2. Fyrirspurn frá fulltrúum sjálfstæðisflokksins:

Hversu mikil viðskipti hafa verið við endurskoðun fyrirtækja hjá borgarsjóði og fyrirtækjum borgarinnar á árunum 1994-2002, sundurgert eftir árum, upphæðum og verkefnum ? Hvernig hefur verið staðið að vali á fyrirtækjum með samninga, útboðum eða öðrum aðferðum?

Fundi slitið kl. 9:45

Stefán Jóhann Stefánsson
Hrólfur Ölvisson
Kristján Guðmundsson
Steinar Harðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson