Innkauparáð
INNKAUPARÁÐ
Ár 2012, föstudaginn 29. júní var haldinn 273. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 12.15. Viðstaddir voru Kjartan Valgarðsson og Barði Jóhannsson. Einnig sat fundinn Guðbjörg Eggertsdóttir deildarstjóri á Innkaupaskrifstofu sem jafnframt ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 27. júní 2012 þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Verktakafélagsins Glaums ehf. í útboði nr. 12834 Stofnstígur meðfram Vesturlandsvegi 2. áfangi. Hamrahlíð - Hallar. R12050052.
Samþykkt.
2. Lagt fram erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar dags. 27. júní 2012 þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Sagafilm ehf. í útboði nr. 12852 Borgarleikhúsið, hreyfanleg sviðsljós. R12060039.
Barði Jóhannsson vék af fundi kl. 12:20.
Karl Sigurðsson tók sæti á fundinum kl. 12:25
Samþykkt.
Ámundi Brynjólfsson og Þorkell Jónsson Framkvæmda- og eignasviði sátu fundinn við afgreiðslu mála 1og 2.
Karl Sigurðsson vék af fundi kl. 12:30 og tók Barði Jóhannsson sæti á fundinum.
3. Lagt fram yfirlit Menningar- og ferðamálasviðs varðandi einstök viðskipti yfir 1.m.kr. vegna 1. ársfjórðungs 2012.
4. Lagt fram yfirlit skipulags- og byggingasviðs varðandi einstök viðskipti yfir 1.m.kr. vegna 1. ársfjórðungs 2012.
Fundi slitið kl. 12.31
Kjartan Valgarðsson
Barði Jóhannsson