Innkaupa- og framkvæmdaráð - og framkvæmdaráð fimmtudaginn 28. maí 2026 nr. 189

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 28. maí var haldinn 189. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Melavöllum og hófst kl. 13:05. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:    Sandra Hlíf Ocares, Sara Björg Sigurðardóttir, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns og Þorvaldur Daníelsson. Andrea Jóhanna Helgadóttir sat fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Theodór Kjartansson starfsmaður borgarlögmanns. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.

Þetta gerðist:

  1. Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26050372 dags. 26. maí 2026 varðandi útboð 16285 Yfirborðsmerkingar í Reykjavík 2026, þar sem lagt er til að gengið verði að lægsta gilda tilboði frá Vegamálun ehf.

    Samþykkt að taka á dagskrá uppfært erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. maí 2026.
    Samþykkt.

    Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

     Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Pírata og Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:Gerðar eru athugasemdir við að ekki fylgdu fundargögn með upplýsingum um það af hverju lægsta tilboð var ekki talið gilt. Mikilvægt er að fulltrúar ráðsins hafi aðgang að öllum þeim gögnum sem koma til skoðunar þegar útboðsgögn eru metin. Einnig þykir fulltrúunum sjálfsagt að þeir tilboðsgjafar sem ekki eru taldir hafa uppfyllt útboðsskilmála og er af þeim sökum hafnað, fái upplýsingar um það strax í höfnunarbréfi sem sent er út og þar sem tilteknar eru ástæður höfnunar. Þrátt fyrir að að tilboðsgjafa sé gefinn kostur á því að óska formlega eftir rökstuðningi þykir fulltrúum það vera í takt við góða stjórnsýsluhætti og vönduð vinnubrögð að upplýsa tilboðsgjafa strax.

    -Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:.

    Fulltrúinn óskar eftir því að upplýsingar um það af hverju lægsta tilboð er ekki talið gilt komi ávallt fram í erindi til ráðsins um töku tilboðs til þess að ráðsmenn geti óskað eftir gögnunum tímanlega ef þau fylgja ekki gögnum fundarins. Mikilvægt er að fulltrúar ráðsins hafi aðgang að öllum þeim gögnum sem koma til skoðunar þegar útboðsgögn eru metin.

    Fylgigögn

  2. Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK23070079 dags. 26. maí 2026 varðandi útboð 16298 Rimaskóli – Innanhússfrágangur Áfangi 1, þar sem lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda E. Sigurðsson ehf.
    Samþykkt.

    Gréta Þórsdóttir Björnsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    14:32 Sandra Hlíf Ocares víkur af fundi.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 14:38

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs 28. maí 2026 - Prentvæn útgáfa