Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 9. júlí var haldinn 192. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:03. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir.
Friðjón R. Friðjónsson, Björn Gíslason, Regína Ásvaldsdóttir og Safa Jemai sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Dagmar Arnardóttir starfsmaður borgarlögmanns. Fundarritari var Helena Rós Sigmarsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi Skóla- og frístundasviðs merkt FAS25090025 dags. 2. júlí 2026 varðandi EES útboð 16209 Ræsting fyrir grunnskola Reykjavíkurborgar þar sem lagt er til að tilboði lægstbjóðanda í hverjum hluta, þ.e við: Daga hf. í hluta 1, 2 og 3 og Sólar ehf. í hluta 4.
Samþykkt.
Haukur Þór Haraldsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingar og Vinstrisins:
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins í innkauparáði samþykkja fyrirliggjandi tilboð í ræstingu á skólahúsnæði borgarinnar enda fjallað um ábyrgð seljenda á að framfylgja gildandi kjarasamningum gagnvart starfsfólki og skyldu seljenda til að vinna að því að á samningstíma sé starfandi trúnaðarmaður starfsfólks í ræstingu, sbr. liði nr. 1.11 og 1.11.1 í útboðsskilmálum. Óskað er eftir því að lögð verði fram áætlun í innkauparáði innan eins árs frá gildistöku samningsins um hvernig eftirliti með framfylgd þessara liða í útboðslýsingunni verði háttað. Þá leggja fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins áherslu á að þeim starfsmönnum sem óska eftir, verði boðin störf hjá nýjum rekstraraðila.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:39
Friðjón R. Friðjónsson Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Björn Gíslason Regína Ásvaldsdóttir
Safa Jemai
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs 9. júlí 2026 - Prentvæn útgáfa