Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 7. maí var haldinn 186. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Sara Björg Sigurðardóttir, og Birna Hafstein. Andrea Jóhanna Helgadóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Björn Atli Davíðsson starfsmaður borgarlögmanns. Ólafur Steingrímsson starfandi skrifstofustjóri skrifstofu fjármálþjónustu og ráðgjafar sat einnig fundinn í fundarsal. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26040357 dags. 24. apríl 2026 varðandi útboð útboð 16284 Bryggjuhverfi vestur – Yfirborðsfrágangur, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Fagurverk ehf.
- 13:04 Birna Hafstein kemur inn á fundinn
Samþykkt.Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26040351 dags. 24. apríl 2026 varðandi útboð 16291 Malbiksyfirlagnir og fræsingar í Reykjavík 2026 - útboð 1 - vestan Reykjanesbrautar, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Colas Ísland hf.
Samþykkt.
Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26040353 dags. 24. apríl 2026 varðandi Útboð 16292 Malbiksyfirlagnir og fræsingar í Reykjavík 2026. Útboð 2 – Austan Reykjanesbrautar, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Malbikunarstöðin Höfði hf.
Samþykkt.
Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26030358 dags. 24. apríl 2026 varðandi útboð 16293 Úlfarsárdalur við Leirtjörn – Yfirborðsfrágangur 2026, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda, Alma verk ehf.
Samþykkt.
Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Innkaupa- og framkvæmdaráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Í framlögðu erindi umhverfis- og skipulagssviðs í málinu hefur tilboðsfjárhæð verið misrituð á þann hátt að tekið er mið af „tilboðsverð við opnun“ kr. 58.798.750 en ekki „tilboðsverði eftir yfirferð“ kr. 59.692.750 sbr. opnunarfundargerð útboðsins. Skjalið verður leiðrétt en þessi misritun hefur ekki efnisleg áhrif á hvaða aðili telst lægstbjóðandi.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi mannauðs- og starfsumhverfissviðs merkt ÞON24120004 dags. 4. maí 2026 varðandi EES útboð mannauðs- og launakerfi – Samkeppnisútboð nr. 16168, þar sem lagt er til að gengið verði að hagkvæmasta tilboðinu sem var frá Corus ehf.
Samþykkt.
Salvör Gyða Lúðvíksdóttir og Bryndís Ernstdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:46
Andrea Helgadóttir Sara Björg Sigurðardóttir
Árelía Eydís Guðmundsdóttir Birna Hafstein
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráð 07.05.2026 - Prentvæn útgáfa