Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 87

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2022, fimmtudaginn 6. október 2022 var haldinn 87. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir. Sandra Hlíf Ocares, Björn Gíslason, Pawel Bartoszek og Sara Björg Sigurðardóttir sátu fundinn í fundarsal. Theodór Kjartansson frá borgarlögmanni sat fundinn með rafrænum hætti. Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu sat fundinn í fundarsal ásamt Guðbjörgu Matthíasdóttur og var sú síðastnefnda jafnframt fundarritari.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi skrifstofu framkvæmda og viðhalds, umhverfis- og skipulagssviði, dags. 30. september 2022, merkt USK21120080, útboð nr. 15654 Vogabyggð 2. Arkavogur og Drómundarvogur - Gatnagerð og lagnir.  Lagt er til við innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda sem er Lóðaþjónustan ehf. að fjárhæð kr. 115.155.550,-

    Samþykkt

    Ámundi Brynjólfsson situr undir þessum fundarlið.

    Fylgigögn

Björn Gíslason Sara Björg Sigurðardóttir

Sandra Hlíf Ocares Pawel Bartoszek

Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
87. fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 6. október 2022.pdf