Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 54

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2021, fimmtudaginn 18. nóvember var haldinn 54. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal, 4. hæð Borgartúni 12-14 og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar innkaupa- og framkvæmdaráðs tóku sæti á fundinum: Sabine Leskopf og Ólafur Kr. Guðmundsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Dóra Magnúsdóttir og R. Alda Vilhjálmsdóttir. Einnig sat fundinn Jón Pétur Skúlason og Björn Atli Davíðsson frá embætti borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir skrifstofustjóri innkaupaskrifstofu.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 15. nóvember 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda Íslenskir aðalverktakar hf. í útboði 15159 – Sjóvarnargarðar við Ánanaust. R21030274.
    -    kl. 13:09 tók Alexandra Briem sæti á fundinum.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram þrjú yfirlit innkaupaskrifstofu, dags. 15. nóvember 2021, varðandi yfirlit yfir verkefni innkaupaskrifstofu í júní, júlí og ágúst 2021 skv. 7. gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar. R21010052. 

    Fylgigögn

  3. Lagt fram erindi upplýsingatækniþjónustu, dags. 16. nóvember 2021, varðandi heimild til framhaldskaupa á útboði nr. 14330 Microsoft EAS hugbúnaðarleyfi á grundvelli 30. gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar. R18100350.
    Frestað.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 13:16

Sabine Leskopf Alexandra Briem

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa_og_framkvaemdarad_1811.pdf