Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 47

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2021, fimmtudaginn 2. sept. var haldinn 47. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal, 4. hæð Borgartúni 12-14 og með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar innkaupa- og framkvæmdaráðs tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsinu nr. 894/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Sabine Leskopf, Valgerður Árnadóttir, Dóra Magnúsdóttir, Björn Gíslason og Jórunn Pála Jónasdóttir. Einnig sat fundinn Theodór Kjartansson frá embætti borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 31. ágúst 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda Garðvéla ehf. í útboði 15281 – Græna netið – þétting gróður. 2 áfangi. R2180005.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  2. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 31. ágúst 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda Þarfaþing hf í útboði 15264 – Kleppsvegur 150-152 Uppbygging og fullnaðarfrágangur. R21070067.
    Samþykkt. 

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 13:12

Sabine Leskopf

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa_og_framkvaemdarad_0209.pdf