Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 45

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2021, fimmtudaginn 19. ágúst var haldinn 45. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal, 4. hæð Borgartúni 12-14 og með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar innkaupa- og framkvæmdaráðs tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsinu nr. 894/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Sabine Leskopf, Alexandra Briem, Dóra Magnúsdóttir, Björn Gíslason og R. Alda Vilhjálmsdóttir. Einnig sat fundinn Eyþóra Kristín Geirsdóttir frá embætti borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. ágúst 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda Grafa og grjót ehf. í útboði 15262 – Sjómannaskólareitur – Gatnagerð og lagnir. R21070047.
    Samþykkt. 

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  2. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 16. ágúst 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda Lóðaþjónustan ehf. í útboði 15277 – Vogabyggð 2. Dugguvogur. Gatnagerð og lagnir. R21070115.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  3. Lagt fram svar borgarlögmanns, dags. 16. ágúst 2021, við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokks á fundi innkaupa- og framkvæmdaráðs 23. desember 2020 um þýðingu úrskurðar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 32/2019. R20010055.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 13:14

Sabine Leskopf Alexandra Briem

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa_og_framkvaemdarad_1908.pdf