Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 42

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2021, fimmtudaginn 15. júlí var haldinn 42. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal, 4. hæð Borgartúni 12-14 og með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 13:00. Eftirtalinn fulltrúi innkaupa- og framkvæmdaráðs tók sæti á fundinum Ellen Calmon, aðrir ráðsmenn tóku sæti með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsinu nr. 354/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Sabine Leskopf, Björn Gíslason. Einnig sat fundinn Eyþóra Kristín Geirsdóttir frá embætti borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 13. júlí 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda Verksýn ehf. í útboði 15199 – Kleppsvegur 150-152 og Safamýri 5 – umsjón og eftirlit. R21050255.

    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram erindi þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 8. júlí 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda Hreint ehf. í útboði 15178 – um ræstingar í Ráðhúsi Reykjavíkur, Borgartúni 12-14 og Tjarnargötu 12. R21050248.

    Samþykkt

    Aldís Geirdal Sverrisdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram svar þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 12. júlí 2021, varðandi töku hagkvæmasta gilda tilboðs MainManager ehf. í samkeppnisútboði 14945 – Eignaumsjónarkerfi, hugbúnaðarlausn fyrir umhverfis- og skipulagssvið. R21020138.

    Samþykkt.

    Aldís Geirdal Sverrisdóttir og Sigurlaug Björg Stefánsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 13:25

Sabine Leskopf