Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 41

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2021, fimmtudaginn 8. júlí var haldinn 41. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal, 4. hæð Borgartúni 12-14 og með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 14:00. Eftirtaldir innkaupa- og framkvæmdaráðs fulltrúar tóku sæti á fundinum Sabine Leskopf, Ellen Jacqueline Calmon aðrir ráðsmenn tóku sæti með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsinu nr. 354/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Valgerður Árnadóttir, Örn Þórðarson og Jórunn Pála Jónasdóttir. Einnig sat fundinn Þóhildur Lilja Ólafsdóttir frá embætti borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði. 
Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi borgarbókasafns, dags. 28. júní 2021, varðandi töku lægstbjóðanda Bibliotheca a/s í útboði 14967 – Sjálfsafgreiðsluvélar borgarbókasafns. R20080004.
    Samþykkt.

    Pálína Magnúsdótttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 1 júlí 2021, varðandi frekari skýringa frá yfirliti yfir einstök kaup sem að lagt var fram á 27. fundi innkaupa og framkvæmdaráðs þann 25 febrúar 2021. R21010052.

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræður um mælaborð innkaupa- og framkvæmdaráðs, sem listi uppsettur með gagnsæjum hætti verkefni fjárfestingaráætlunar Reykjavíkurborg, ásamt tíma- og kostnaðaráætlunum, með vísun í 4. dagskrárlið 2. fundar innkaupa framkvæmdaráðs 4. juní 2020. 
    Frestað.

Fundi slitið klukkan 13:17

Sabine Leskopf

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa_og_framkvaemdarad_0807.pdf