Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 31

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2021, fimmtudaginn 8. apríl var haldinn 31. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir innkaupa- og framkvæmdaráðs fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Alexandra Briem, Dóra Magnúsdóttir, Ellen Jacqueline Calmon, Björn Gíslason, R. Alda Vilhjálmsdóttir. Einnig sat fundinn með Elín Hrefna Ólafsdóttir frá embætti borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. apríl 2021, varðandi töku lægsta gilda tilboðs Exton ehf. í EES útboði 15063, Endurnýjun lýsingar í Laugardalshöll – Uppfestibúnaður fyrir lýsingu og viðburðarbúnað. R20120041.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 6. apríl. 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda Háfells ehf í útboði 15118, Litlahlíð - Gatnagerð og lagnir. R21020176.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 31. mars. 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda Heinz Byggingar ehf. í útboði 15100, Funaborg – Skógarhús. Uppbygging og fullnaðarfrágangur. R21020063.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 6. apríl. 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda í hverjum hluta, Straumkul ehf., TG raf ehf., Rafsveinn ehf., Raflýsing ehf., Þéttir ehf., Þelamörk ehf., Rafholt ehf. og Ljósver ehf. í EES útboði 15097, Reglubundið viðhald raflagna í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 1, 2 og 3. R21020109.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 6. apríl. 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda í hverjum hluta, Straumkul ehf., TG raf ehf., Þéttir ehf., Raflýsing ehf., Þelamörk ehf., Ljósver ehf. og Rafrún ehf. í EES útboði 15109, Ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar – Reglubundið viðhald raflagna – Hverfi 4 og 5. R21020110.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 6. apríl. 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda í hverjum hluta, Straumkul ehf., Raflýsing ehf. og Rafsel slf. í EES útboði 15110, Ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar – Reglubundið viðhald raflagna – Hverfi 6 og 7. R21020111.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 6. apríl. 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda í hverjum hluta, Straukul ehf. og Raflýsing ehf. í EES útboði 15111, Ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar – Reglubundið viðhald raflagna – Hverfi 8, 9 og 10. R21020112.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram yfirlit frá Íþrótta- og tómstundasviði dags. 24. mars. 2021, varðandi einstök innkaup yfir 5.0 mkr. á árinu 2020 með vísan í 7. gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar. R21010052.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 13:28

Alexandra Briem Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa_og_framkvaemdarad_0804.pdf