Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 30

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2021, fimmtudaginn 25. mars var haldinn 30. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal, Borgartúni 12-14 og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir innkaupa- og framkvæmdaráðs fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsinu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Alexandra Briem, Dóra Magnúsdóttir, Ellen Jacqueline Calmon, Björn Gíslason, R. Alda Vilhjálmsdóttir. Einnig sat fundinn með Eyþóra Kristín Geirsdóttir frá embætti borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram að erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. mars 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda VSÓ Ráðgjöf ehf. í EES útboði 15075, Hlemmur og nágrenni endurgerð – Hönnun. R20120156.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 22. mars. 2021, varðandi töku tilboðs lægstbjóðanda D. Ing Ver ehf. í útboði 15112, Snorrabraut – Borgartún – Áfangi 2, gatnagerð og lagnir. R21020103.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram yfirlit innkaupaskrifstofu, dags. 23. mars 2021, yfir þau verkefni innkaupaskrifstofu f.h. skrifstofu og sviða í janúar og febrúar 2021. R21010025.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram yfirlit þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 23. mars. 2021 varðandi einstök innkaup yfir 5 miljónum króna fyrir 4 ársfjórðung 2020 með vísun í 1. og 2 mgr. 7 gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar. R21010025.
    Frestað.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 13:16

Alexandra Briem Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa_og_framkvaemdarad_2503.pdf