Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 29

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2021, fimmtudaginn 18. mars var haldinn 29. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal, Borgartúni 12-14 og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir innkaupa- og framkvæmdaráðs fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsinu nr. 1076/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Alexandra Briem, Dóra Magnúsdóttir, Ellen Jacqueline Calmon, Björn Gíslason, R. Alda Vilhjálmsdóttir. Einnig sat fundinn með Eyþóra  Kristín Geirsdóttir frá embætti borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram að erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. mars 2021, varðandi töku hagkvæmasta gilda tilboðs KH vinnuföt ehf. í hluta 1 og 3 og Heildverslunina Rún ehf. í hluta 2 í EES útboði 14868, Rammasamningur um vinnuföt og persónuhlífar fyrir umhverfis og skipulagssvið. R20070042.
    Samþykkt.

    Hafsteinn Viktorsson og Hjalti Jóhannes Guðmundsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 16. mars. 2021, varðandi töku lægsbjóðanda í hvern hluta. Jóhann V. Steimann, Málun SSB ehf., Aðalfagmenn ehf., Málarameistarar ehf., GÁ verktakar sf., HiH Málun ehf. og Verkferill – Þekking ehf. Varðandi útboð 15087, Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar 2021 – Hverfi 1, 2 og 3. R21010170.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 13:15

Alexandra Briem Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa_og_framkvaemdarad_1803.pdf