Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 26

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2021, fimmtudaginn 11. febrúar var haldinn 26. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í fjarfundi og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir innkaupa- og framkvæmdaráðs fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsinu nr. 1076/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Sabine Leskopf, Alexandra Briem, Dóra Magnúsdóttir, Björn Gíslasson og R Alda Vilhjálmsdóttir. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Eyþóra  Kristín Geirsdóttir frá embætti borgarlögmanns og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram að erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 3. febrúar 2021, varðandi töku lægsta gilda tilboðs frá Dagar hf. í EES útboði 15055, Ræsting Lindargötu 57-66. R20110278.
    Samþykkt.

    Hinrik Fjeldsted og Matthías Skúlason taka sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram úrskurður kærunefndar útboðsmála, dags. 19. janúar 2021 í máli nr. 29/2020 Mannvit hf. gegn Reykjavíkurborg, Veitum ohf. Mílu ehf., Gagnaveitu Reykjavíkur ehf og Eflu ehf. til kynningar. R20050093.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 13:36

Sabine Leskopf Alexandra Briem

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa_og_framkvaemdarad_1102.pdf