Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 24

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2021, fimmtudaginn 21. janúar var haldinn 24. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í fjarfundi og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir innkaupa- og framkvæmdaráðs fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsinu nr. 1076/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Sabine Leskopf, Alexandra Briem, Ellen Jacqueline Calmon, Ólafur Kr. Guðmundsson og R Alda Vilhjálmsdóttir. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Eyþóra  Kristín Geirsdóttir frá embætti borgarlögmanns og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram að erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 8. janúar 2021, varðandi heimild til framlengingar á samningi við Hnit verkfræðistofu hf. í útboði 14701, verkefnastjóri Vogabyggðar – Ráðgjöf. R19110380.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  2. Lagt fram að erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 18. janúar 2021, varðandi heimild til töku lægsta gilda tilboðs við E. Sigurðsson ehf. í útboði 15025, Gullborg – Færanlegar stofur. R 20100026.
    Samþykkt. 

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram að erindi umhverfis- og skipulagssvið, dags. 18. janúar 2021, varðandi heimild til framlengingar á samningi við Garðlist ehf. í útboði 14823 og 14824, Beðahreinsun á stofnanalóðum 2020 Austur og Vestur. R20040047 og R20040048.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  4. Lagt fram svar innkaupaskrifstofu, dags. 18. janúar 2021, við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem lögð var fram í 5 lið. á 23. fundi ráðsins, 23. desember 2020, varðandi yfirlit yfir þau innkaup sem eru hliðstæð þeim sem kærunefnd útboðsmála úrskurðaði um 16. desember 2020 er varðar stýringu á umferðarljósum. R21010052.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 13:55

Sabine Leskopf Alexandra Briem

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa_og_framkvaemdarad_2101.pdf