Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 22. október, var haldinn 199. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Viðstödd voru Friðjón R. Friðjónsson, Sigrún Ásta Einarsdóttir, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir og Safa Jemai. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Sunna Lind Höskuldsdóttir starfsmaður borgarlögmanns. Hallgrímur Tómasson og Guðrún P. Ólafsdóttir frá skrifstofu fjármálaþjónustu og innkaupa sátu einnig fundinn. Fundarritari var Helena Rós Sigmarsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags 12. október 2026 varðandi EES Útboð nr. 16346 – Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Reykjavík 2026-2027, útboðshluti 2, þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda frá Garðlist ehf.
Samþykkt.
Karl Eðvaldsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi skóla- og frístundasviðs, dags 16. október 2026 varðandi EES útboð nr. 16200 - Rammasamningur um mötuneytisþjónustu SFS, þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að samið verði við alla hæfa bjóðendur sem eru Í Mat ehf. og Skólamatur ehf.
Samþykkt.
Fulltrúi Vinstrisins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Haukur Þór Haraldsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 19. október 2026, varðandi yfirlit innkaupa yfir 10. m.kr. á tímabilinu júlí 2025 – júlí 2026 hjá fjármála- og áhættustýringarsviði.
Hörður Hilmarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 22. október 2026, varðandi yfirlit innkaupa yfir 10. m.kr. á tímabilinu júlí 2025 – júlí 2026 hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði.
Sæþór Fannberg Sæþórsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit velferðarsviðs, dags. 22. október 2026, varðandi yfirlit innkaupa yfir 10. m.kr. á tímabilinu júlí 2025 – júlí 2026 hjá velferðarsviði.
Karel Fannar Sveinbjörnsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 14:13
Friðjón R. Friðjónsson Sigrún Ásta Einarsdóttir
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Safa Jemai
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs 22. október 2026 - Prentvæn útgáfa