Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 197

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 24. september var haldinn 197. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. 

Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Friðjón R. Friðjónsson, Bjarni Guðjónsson og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir.

Safa Jemai og Regína Ásvaldsdóttir sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Björn Atli Davíðsson starfsmaður borgarlögmanns.  Hallgrímur Tómasson starfsmaður skrifstofu fjármálaþjónustu og ráðgjafar sat einnig fundinn. Fundarritari var Helena Rós Sigmarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt er fram til kynningar erindi Umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26020362 dags. 18. september 2026 varðandi útboð16279 Hlemmur norður og borgarlína um Hlemm, gatnagerð, lagnir og yfirborðsfrágangur, þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að ganga til samninga við Gröfu og grjót – INVIT ehf. á grundvelli samningskaupa skv. a. lið 39. gr. laga um opinber innkaup.

    Rúnar Gísli Valdimarsson og Margrét Lilja Gunnarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Lagt er fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26090231 dags. 15. september 2026 varðandi EES útboð 16319 Þjónusta við trjáfellingar í borgarlandinu – rammasamningur, þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að samkomulagi við alla bjóðendur.

    Samþykkt.

    Karl Eðvaldsson og Margrét Lilja Gunnarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  3. Lagt er fram erindi Þjónustu- og nýsköpunarsviðs merkt ÞON26090061 dags 17. september 2026 varðandi Rammasamningsútboð nr. 16326, Forritun á vef Reykjavíkurborgar, þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að hagstæðasta gilda tilboði frá 1xInternet.

    Samþykkt.

    Ásta Þöll Gylfadóttir og Guðrún Jóhannsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:45

Friðjón R. Friðjónsson Bjarni Guðjónsson

Regína Ásvaldsdóttir Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Safa Jemai

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 24. september 2026