Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 19

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2020, fimmtudaginn 12. nóvember var haldinn 19. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Fjarfundi og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir innkaupa- og framkvæmdaráðs fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 780/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Sabine Leskopf, Alexandra Briem, Ellen Jacqueline Calmon, Björn Gíslason og Jórunn Pála Jónasdóttir.  Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði  Theodór Kjartansson frá embætti borgarlögmanns og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 9. nóvember 2020, varðandi heimild til töku tilboðs lægstbjóðanda Jarðvals sf. í útboði nr. 15032 Rauðavatn – Stígagerð. R20100122.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði

    Fylgigögn

  2. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 4. nóvember 2020, varðandi heimild til töku tilboðs lægstbjóðanda Eflu hf. í útboði nr. 15012 Borgargata Árbæ, forhönnun. R20090186.
    Samþykkt.

    Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 13:20

Sabine Leskopf Alexandra Briem

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa_og_framkvaemdarad_1211.pdf