Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 182

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 26. febrúar var haldinn 182. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Melavöllum og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Sandra Hlíf Ocares og Sara Björg Sigurðardóttir. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns og Stefán Pálsson sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Þórhildur Lilja Ólafsdóttir starfsmaður borgarlögmanns. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.

Þetta gerðist:

  1. Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26020134 dags. 9. febrúar 2026 varðandi útboð nr. 16245  – Leikskólinn Maríuborg – kennslustofur – hönnun, smíði og lóðarfrágangur, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Terra einingar ehf. sem var lægstbjóðandi.

    -    Árelía Eydís Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum kl. 13:03

    Samþykkt.

    Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK25100440 dags. 16. febrúar 2026 varðandi útboð 16239 Hólmsheiði, 2. áfangi – hönnun, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði VSB verkfræðistofu ehf. sem var lægstbjóðandi.

    Samþykkt.

    Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:15

Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Sandra Hlíf Ocares

Árelía Eydís Guðmundsdóttir Sara Björg Sigurðardóttir

Stefán Pálsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs 25. febrúar 2026 - Prentvæn útgáfa