Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 181

Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 181

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 12. febrúar var haldinn 181. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Vogum og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Sandra Hlíf Ocares og Sara Björg Sigurðardóttir. Andrea Jóhanna Helgadóttir og Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Hildur Helga Kristinsdóttir starfsmaður borgarlögmanns. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.

Þetta gerðist:

  1. Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK25030313 dags. 2. febrúar 2026 varðandi útboð nr. 16240  – Elliðaárdalur – Stígur í stað stokks, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Ístaks hf. sem var lægstbjóðandi.
    Samþykkt.

    Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    -    Kl. 13:14 Sara Björg Sigurðardóttir og Árelía Eydís Guðmundsdóttir yfirgefa fundinn.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:16

Andrea Helgadóttir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns

Sandra Hlíf Ocares

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs 12.02.2026 - Prentvæn útgáfa