Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 177

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2025, fimmtudaginn 6. nóvember var haldinn 177. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar Birna Hafstein. Andrea Jóhanna Helgadóttir, Birkir Ingibjartsson, Sara Björg Sigurðardóttir og Árelía Eydís Guðmundsdóttir sátu fundinn í fundarsal. Þá sat Þórhildur Lilja Ólafsdóttir starfsmaður borgarlögmanns fundinn með fjarfundarbúnaði. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 3. nóvember 2025, merkt USK25050528, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda K16 ehf. í útboði nr. 16198 – Hlíð – Sólhlíð – Endurgerð húsnæðis. 

    Samþykkt. 

    Rúnar Ingi Guðjónsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Kynning. 

    Birna Hafstein víkur af fundi kl. 13:51 

    Margrét Lilja Gunnarsdóttir, Hjalti Jóhannes Guðmundsson og Karl Eðvaldsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

Fundi slitið kl. 14:13

Andrea Helgadóttir Birna Hafstein

Birkir Ingibjartsson Árelía Eydís Guðmundsdóttir

Sara Björg Sigurðardóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 6. nóvember 2025