Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2025, fimmtudaginn 26. júní var haldinn 168. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar Árelía Eydís Guðmundsdóttir. Andrea Helgadóttir, Sara Björg Sigurðardóttir, Kristinn Jón Ólafsson og Birna Hafstein sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir. Þá sat Jón Páll Hilmarsson, starfsmaður borgarlögmanns fundinn með fjarfundarbúnaði.
Fundarritari var Hallgrímur Tómasson
Þetta gerðist:
-
Lagt fram stöðuyfirlit frá fjármála- og áhættustýringarsviði, dags. 23. júní 2025, merkt FAS24090016, varðandi rammasamning nr. 16022 – Húsasmíði og aðalverktaka. Kynning.
Lilja Ástudóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 18. júní 2025, merkt ÞON25060016, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Crayon Iceland ehf. í útboði nr. 16083 – Endurnýjun á Atlassian samning.
Samþykkt.
Helga Sigrún Kristjánsdóttir, Tómas Guðmundsson og Sæþór Fannberg taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 24. júní 2025, merkt USK25020311, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Eðalbyggingar ehf. í útboði nr. 16142 – Seljaborg leikskóli -stakstæðar kennslustofur – Tungusel 2.
Samþykkt.Gréta Þórsdóttir Björnsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:25
Andrea Helgadóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Sara Björg Sigurðardóttir Birna Hafstein
Kristinn Jón Ólafsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá26. júní 2025