Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2025, fimmtudaginn 13. mars var haldinn 159. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar Birkir Ingibjartsson. Kristinn Jón Ólafsson, Árelía Eydís Guðmundsdóttir. Andrea Jóhanna Helgadóttir og Björn Gíslason sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir. Þá sat Theodór Kjartansson, starfsmaður borgarlögmanns fundinn með fjarfundarbúnaði.
Fundarritari var Hallgrímur Tómasson
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dags. 10. mars 2025, merkt USK24110096, þar sem lagt er til að gengið verði að lægsta tilboði, sem er frá Tindhagur ehf. í útboði nr. 16039 Hólabrekkuskóli – áfangi 4 – Endurgerð húsnæðis.
Samþykkt.
Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dags. 11. mars 2025, merkt USK25010287, þar sem lagt er til að gengið verði að næst lægsta gilda tilboði, sem er frá K16 ehf. í útboði nr. 16099 Vesturbæjarskóli - Þak miðálmu.
Samþykkt.
Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:12
Andrea Helgadóttir Birkir Ingibjartsson
Kristinn Jón Ólafsson Björn Gíslason
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 13. mars 2025