Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 157

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2025, fimmtudaginn 20. febrúar var haldinn 157. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar   Sandra Hlíf Ocares og Birkir Ingibjartsson. Kristinn Jón Ólafsson, Björn Gíslason og Erlingur Sigvaldason sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn Hallgrímur Tómasson. Þá sat Björn Atli Davíðsson, starfsmaður borgarlögmanns fundinn með fjarfundarbúnaði. 

Fundarritari var Halla Björg Evans

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi frá umhverfis- og skipulagssviði, dags. 17. febrúar  2025, merkt USK24110030, þar sem lagt er til að gengið yrði að lægsta gilda tilboði Stjörnugarða ehf. í útboði nr. 16086. Vatnsstígur (Laugavegur-Hverfisgata) - Endurnýjun götu.

    Samþykkt.

    Guðni Guðmundsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram erindi frá umhverfis- og skipulagssviði, dags. 17. febrúar  2025, merkt USK24110087, þar sem lagt er til að hafna öllum tilboðum  í útboði nr. 6078 - Endurnýjun vallarlýsingar á æfingavelli Víkings.

    Samþykkt.

    Guðni Guðmundsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13.19.

Kristinn Jón Ólafsson Birkir Ingibjartsson

Erlingur Sigvaldason Sandra Hlíf Ocares

Björn Gíslason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 20. febrúar 2025