Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2024, fimmtudaginn 21. nóvember var haldinn 153. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar Sandra Hlíf Ocares. Hjálmar Sveinsson, Björn Gíslason, Kristinn Jón Ólafsson sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn Dagmar Arnardóttir, starfsmaður borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði.
Fundarritari var Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir
Þetta gerðist:
-
Lagt fram kynning á verklagi innkaup, dags. 18. nóvember 2024, merkt ÞON24110042, frá þjónustu- og nýsköpunarsviðs.
Lena Mjöll Markúsdóttir, Sæþór Fannberg Sæþórsson og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 18. nóvember 2024, merkt USK24100061 þar sem lagt er til að gengið yrði að tilboði lægstbjóðandi Ístaks hf. í útboði nr. 16064 - Kleppsvegur 150-152. Lagfæringar og endurbætur.
Samþykkt.
Ámundi Brynjólfsson og Margrét Lilja Gunnarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13.57
Hjálmar Sveinsson Kristinn Jón Ólafsson
Sandra Hlíf Ocares Pawel Bartoszek
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 21. nóvember 2024