Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2024, þriðjudaginn 5. nóvember var haldinn 152. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Lykkju og hófst kl. 11:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar Björn Gíslason, Sandra Hlíf Ocares og Kristinn Jón Ólafsson. Hjálmar Sveinsson og Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir sáttu fundinn í fundarsal. Einnig sátu fundinn Hallgrímur Tómasson sem og Þórhildur Lilja Ólafsdóttir, starfsmaður borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði.
Fundarritari var Halla Björg Evans.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 31. október 2024, merkt FAS24070019 þar sem lagt er til að gengið yrði að tilboði Klettur- sala og þjónusta ehf. í EES útboði nr. 15975 – Kaup á sorphirðubifreiðum.
Samþykkt.
Friðrik Klingbeil Gunnarsson og Guðmundur Benedikt Friðriksson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 30. október 2024, merkt USK24070030 þar sem lagt er til að gengið yrði að tilboði Ísorku í stöðvar nr. 1, 6, 10, 13 og 19. Tilboði Orkusalan í stöðvar nr. 2, 5, 9, 14 og 17. Tilboði HS Orku í stöð nr. 3. Tilboði ON í stöðvar nr. 4, 7, 11, 15 og 20. Að lokum tilboði HM raflagna í stöðvar nr. 8, 12, 16 og 18. Í útboði nr. 16041 – uppsetning og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla í Reykjavík.
Samþykkt.
Friðrik Klingbeil Gunnarsson og Guðmundur Benedikt Friðriksson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 11:31.
Hjálmar Sveinsson Kristinn Jón Ólafsson
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Sandra Hlíf Ocares
Björn Gíslason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 5. nóvember 2024