Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2024, fimmtudaginn 5. september var haldinn 148. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar Sandra Hlíf Ocares, Sara Björg Sigurðardóttir og Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir. Hjálmar Sveinsson sat fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn Jón Pétur Skúlason, starfsmaður borgarlögmanns með fjarfundarbúnaði.
Fundarritari var Halla Björg Evans.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram bréf umhverfis- og skipulagssvið, dags. 2. september 2024, merkt USK24080292 þar sem lagt er til að gengið yrði að tilboði lægstbjóðanda Garðasmíði ehf. í útboði nr. 16061 - Úlfarsárdalur - Stækkun hverfis - Umhverfisfrágangur 2024 - Urðartorg.
Samþykkt.
Guðni Guðmundsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:13.
Hjálmar Sveinsson Sandra Hlíf Ocares
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Sara Björg Sigurðardóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Innkaupa- og framkvæmdaráð 5.9.2024 - prentvæn útgáfa