Innkaupa- og framkvæmdaráð - fundur nr. 124

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2023, fimmtudaginn 12. október var haldinn 124. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, Sandra Hlíf Ocares. Hjálmar Sveinsson, Kristinn Jón Ólafsson, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir og Kjartan Magnússon sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Jón Pétur Skúlason. Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviði dags. 9. október 2023, merkt USK231000089 þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Þjótandi ehf í útboði 15907 – Úlfarsfellsvegur, endurbygging vegar 2023. FAS23090013.

    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning frá fjármála- og áhættustýringarsviði um stefnumótun og skipulag á fjármála- og áhættustýringarsviði. FAS23010067.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    13:54 vék Elísabet Guðrún Jónsdóttir af fundi.

Fundi slitið kl. 14:29

Hjálmar Sveinsson Kristinn Jón Ólafsson

Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Kjartan Magnússon

Sandra Hlíf Ocares

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 12. október 2023