Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 12

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2020, fimmtudaginn 3. september var haldinn 12. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 13:00. Viðstödd var Sabine Leskopf. Eftirtaldir innkaupa- og framkvæmdaráðs fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 780/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um að framlengja heimild í auglýsingu 230/2020 skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Alexandra Briem, Dóra Magnúsdóttir, Björn Gíslason og Jórunn Pála Jónasdóttir. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Eyþóra Kristín Geirsdóttir frá embætti borgarlögmanns og Jóhanna E. Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu.
Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram erindi umverfis- og skipulagssviðs, dags. 1. september 2020, varðandi heimild til töku tilboðs lægstbjóðanda Sumargarðar ehf. í útboði nr. 14953 – Endurnýjun gönguleiða 2020 – Útboð 1. R20070133.
    Samþykkt.

    Hildur Freysdóttir tók sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði

    Fylgigögn

  2. Lagt fram erindi umverfis- og skipulagssviðs, dags. 1. september 2020, varðandi heimild til töku tilboðs lægstbjóðanda Sólgarðar slf. í útboði nr. 14954 – Endurnýjun gönguleiða 2020 – Útboð 2. R20070134.
    Samþykkt.

    Hildur Freysdóttir tók sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði

    Fylgigögn

  3. Lagt fram yfirlit miðlægrar starfsemi Reykjavíkurborgar - ÞON þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 24. ágúst 2020, varðandi einstök innkaup yfir 5,0 m.kr. tímabilið 201907-202006, með vísan til 7. gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar. R20010055.
    Frestað.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram yfirlit miðlægrar starfsemi Reykjavíkurborgar – MOS mannauðs- og starfsþróunarsviðs, dags. 28. ágúst 2020, varðandi einstök innkaup yfir 1,0 m.kr. tímabilið 202004-202006, með vísan til 7. gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar. R20010055.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram yfirlit innkaupaskrifstofu, dags. 1. september 2020, yfir verkefni innkaupaskrifstofu f.h. skrifstofa og sviða í ágúst 2020. R20010055.

    Fylgigögn

PDF útgáfa fundargerðar
innkaupa-_og_framkvaemdarad_0309.pdf