Innkaupa- og framkvæmdaráð - Fundur nr. 103

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2023, fimmtudaginn 2. mars var haldinn 103. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Sandra Hlíf Ocares. Hjálmar Sveinsson, Elísabet Guðrún Jónsdóttir, Pawel Bartoszek og Björn Gíslason sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Elín Hrefna Ólafsdóttir og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir. Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu framkvæmda og viðhalds, umhverfis- og skipulagssviði, dags. 24. febrúar 2023, merkt USK22020064, varðandi tilboð frá Björgun ehf. í útboð nr. 15733 - Bryggjuhverfi vestur - Efnisöflun úr sjó, landfylling. USK22020064.

    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti undir þessum fundarlið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu framkvæmda og viðhalds, umhverfis- og skipulagssviði, dags. 23. febrúar 2023, merkt USK22020064, varðandi tilboðs lægstbjóðanda Óskatak ehf. í útboð nr. 15734 - Bryggjuhverfi vestur - Efnisflutningar og farghaugar. USK22020064.

    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti undir þessum fundarlið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13.12

Hjálmar Sveinsson Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir

Pawel Bartoszek Björn Gíslason

Sandra Hlíf Ocares

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 2. mars 2023