Innkaupa- og framkvæmdaráð - Aukafundur

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2023, fimmtudaginn 21. desember var haldinn 131. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs, aukafundur. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar Sandra Hlíf Ocares. Hjálmar Sveinsson, Kristinn Jón Ólafsson, Pawel Bartoszek og Björn Gíslason sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn Theodór Kjartansson með fjarfundarbúnaði og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir í fundarsal.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs dags. 12. desember 2023, merkt ÞON23110022 þar sem lagt er til að gengið verði að eina tilboðinu sem barst frá Samsýn ehf. í EES útboði nr. 15917 – Endurnýjun á ArcGIS leyfum. FAS23110004.

    Samþykkt.

    Sæþór Fannberg Sæþórsson og Jörgen Heiðar Þormóðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram með afbrigðum bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. desember 2023, merkt USK23120096 þar sem lagt er til að gengið að lægsta gilda tilboði frá K16 ehf. í útboði nr. 15927 – Garðaborg. Endurgerð húsnæðis. FAS23110002.

    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:21

Hjálmar Sveinsson Kristinn Jón Ólafsson

Pawel Bartoszek Björn Gíslason

Sandra Hlíf Ocares

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 21. desember 2023