Innkaupa- og framkvæmdaráð - 136. fundur

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2024, fimmtudaginn 4. apríl var haldinn 136. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar Sara Björg Sigurðardóttir, Sandra Hlíf Ocares. Hjálmar Sveinsson, Pawel Bartoszek, og Þorkell Sigurlaugsson sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn Theodór Kjartansson með fjarfundarbúnaði.

Fundarritari var Margrét Lilja Gunnarsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 2. apríl 2024, merkt USK24030319 þar sem lagt er til að gengið yrði að tilboði lægstbjóðanda Fortis ehf. í útboði 15964 – Leikskólinn Laugasól – Endurgerð húss og lóðar.

    Samþykkt.

    Hreinn Ólafsson, Ámundi Brynjólfsson og Einar Hjálmar Jónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. 

    Fylgigögn

  2. Lagt fram yfirlit umhverfis- og skipulagssviðs dags 26. mars 2024, varðandi innkaup umhverfis- og skipulagssviðs janúar 2023 – desember 2023, með vísan í 2. málsgrein 7. gr. innkaupareglna Reykjavíkurborgar.

    Hreinn Ólafsson og Ámundi Brynjólfsson, Einar Hjálmar Jónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf eignaskrifstofu, dags. 26. mars 2024, merkt FAS23060033 þar sem tilkynnt er um samningsgerð við Veraldarvini félagasamtök  í samningskaupum nr. 15893 – Sunnutorg – Samkeppnisviðræður. Langholtsvegi 70, Reykjavíkurborg.

    Helena Rós Sigmarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    kl. 13:44 –  víkur Sandra Hlíf Ocares af fundinum.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram kynning á umsögn dags 15. mars 2024, merkt MSS24030042, um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um opinber innkaup.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 14:05

Sara Björg Sigurðardóttir Hjálmar Sveinsson

Þorkell Sigurlaugsson Pawel Bartoszek

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 4. apríl 2024