Íbúaráð Vesturbæjar - Fundur nr. 18

Íbúaráð Vesturbæjar

Ár 2021, miðvikudagur, 18. ágúst var haldinn 18. fundur íbúaráðs Vesturbæjar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur - Tjarnarbúð og með fjarfundarbúnaði, hófst kl. 15.01. Viðstödd var Ásta Olga Magnúsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 894/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Hildur Björnsdóttir, Björn Karlsson og Salvör Ísberg. Fundinn sat einnig Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð og Hörður Heiðar Guðbjörnsson sem sat fundinn með fjarfundarbúnaði.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 12. ágúst 2021 - Heimildir til frávika frá skilyrðum sveitarstjórnarlaga vegna neyðarástands í sveitarfélagi - notkun fjarfundabúnaðar, ásamt fylgiskjölum.

  2. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 7. júlí 2021 vegna draga að lýðræðisstefnu Reykjavíkurborgar.
    Samþykkt að fela varaformanni í samvinnu við ráðið að gera tilraun til að ná saman um sameiginlega umsögn og skila fyrir tilskilinn frest 23. ágúst. 

    Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Sigrún Jóhannsdóttir, Guðni Ársæll Indriðason og Olga Þorsteinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 3. ágúst 2021 vegna tillagna stýrihóps um innleiðingu íbúaráða. 
    Samþykkt að fela varaformanni í samvinnu við ráðið að gera tilraun til að ná saman um sameiginlega umsögn og skila fyrir tilskilinn frest 1. september. 

    Dóra Björt Guðjónsdóttir, Sigrún Jóhannsdóttir, Guðni Ársæll Indriðason og Olga Þorsteinsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 13. júní 2021 og 16. ágúst 2021 vegna auglýsingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 og framlengdum athugasemdarfresti til 31. ágúst 2021. 
    Samþykkt að fela formanni í samvinnu við ráðið falið að gera tilraun til að ná saman um umsögn og skila fyrir tilskilinn frest þann 31. ágúst. 

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða um mögulegar endurbætur á yfirborði samhliða framkvæmdum Veitna frá Vesturgötu til Mýrargötu. 
    Samþykkt að fela varaformanni að hefja vinnu við tillögugerð vegna málsins.

  6. Lagt fram fundadagatal íbúaráðs Vesturbæjar fyrir ágúst – febrúar 2021. 

    Fylgigögn

  7. Fram fer umræða um málefni hverfisins. 

Fundi slitið klukkan 16:35

Hildur Björnsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_vesturbaejar_1808.pdf