Íbúaráð Vesturbæjar - Fundur nr. 14

Íbúaráð Vesturbæjar

Ár 2021, þriðjudagur, 30. mars, var haldinn 14. fundur íbúaráðs Vesturbæjar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur – Tjarnarbúð og með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 17:03. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Birgir Þröstur Jóhannsson, Skúli Helgason, Ásta Olga Magnúsdóttir, Björn Karlsson og Salvör Ísberg. Fundinn sátu einnig Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir og Eiríkur Búi Halldórsson sem ritaði fundargerð og Sigþrúður Erla Arnardóttir sem sat fundinn með fjarfundarbúnaði.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs dags. 10 mars 2021, þar sem óskað er eftir umsögn íbúaráðs Vesturbæjar um tillögu um nýtt skólahverfi í Skerjafirði.
    Formanni falið að kanna málið nánar og skila umsögn fyrir tilskilinn frest í samráði við aðra aðalmenn ráðsins.

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning á fyrirkomulagi uppstillingar kjörseðils fyrir Hverfið mitt í Vesturbæ og opnað fyrir rafræna uppstillingu á vefnum betrireykjavik.is.

  3. Fram fer yfirferð verkefnastjóra Hverfið mitt í Vesturbæ á hugmyndum sem íbúar hafa úr að velja við rafræna uppstillingu. 

  4. Lokað fyrir rafræna uppstillingu kjörseðils fyrir Hverfið mitt í Vesturbæ og niðurstöður kynntar.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 19:05

Skúli Helgason

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_vesturbaejar_3003.pdf