Íbúaráð Miðborgar og Hlíða
Ár 2022, miðvikudagurinn 28. september, var haldinn 31. fundur íbúaráðs Miðborgar og Hlíða. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur Tjarnarbúð og hófst kl. 16.35. Fundinn sátu: Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, Geir Finnsson, Ásdís Káradóttir, , Hanna Björk Valsdóttir og Kolbrún Jarlsdóttir. Fundin sátu einnig Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð og Hörður Heiðar Guðbjörnsson sem sat fundinn með fjarfundarbúnaði.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 9. júní 2022 um kosningu þriggja fulltrúa og þriggja til vara í íbúaráð Miðborgar og Hlíða. Pétur Marteinn Urbancic Tómasson var kosin formaður íbúaráðs Miðborgar og Hlíða. MSS22060062
- 16:36 tekur Sigfús Ómar Höskuldsson sæti á fundinum.
- 16:37 tekur Þórey Björk Sigurðardóttir sæti á fundinum.Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 21. september 2022 um að borgarstjórn hafi samþykkt að Þórður Gunnarsson taki sæti í íbúaráði Miðborgar og Hlíða í stað Söndru Hlífar Ocares og Sandra Hlíf taki sæti varamanns í ráðinu í stað Þórðar. MSS22060062
Fylgigögn
-
Lögð fram tilnefning íbúasamtaka í íbúaráð Miðborgar og Hlíða. Íbúasamtök Miðborgar tilnefna Sigrúnu Tryggvadóttur í íbúaráð Miðborgar og Hlíða og Ásdísi Káradóttur til vara. Íbúasamtök þriðja hverfis tilnefna Sigfús Ómar Höskuldsson í íbúaráð Miðborgar og Hlíða og Sunnu Dögg Ásgeirsdóttur til vara. MSS22080029
Fylgigögn
-
Lögð fram tilnefning foreldrafélaga í íbúaráð Miðborgar og Hlíða. Foreldrafélag Austurbæjarskóla tilnefnir Hönnu Björk Valsdóttur og Jóhönnu Símonardóttur. Foreldrafélög í Hlíðum tilnefna Þóreyju Björk Sigurðardóttur í íbúaráð Miðborgar og Hlíða og Atla Thorstensen til vara. MSS22080029
Fylgigögn
-
Lagt fram slembival í íbúaráði Miðborgar og Hlíða. Kolbrún Jarlsdóttir tekur sæti sem slembivalinn fulltrúi og Sólrún Birna Færseth til vara. MSS22080029
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 10. febrúar 2022 um samþykkt borgarráðs á tillögum stýrihóps um innleiðingu íbúaráða, ásamt fylgiskjölum. MSS21120181
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 12. september 2022, um samþykkt borgarstjórnar á tillögu að breytingum á samþykkt fyrir íbúaráð, sbr. 3. liður fundargerðar borgarstjórnar 6. september. MSS22080241
Fylgigögn
-
Lagt fram til afgreiðslu fundadagatal íbúaráðs Miðborgar og Hlíða. MSS22080127
Samþykkt.Fylgigögn
-
Fram fer umræða um aukið veggjakrot í miðborg. MSS22090158
-
Fram fer umræða um Römpum upp Ísland og ábendingar í Miðborg og Hlíðum. MSS22020088
Samþykkt að fela formanni í samvinnu við ráðið að safna ábendingum í hverfunum og leggja fram á októberfundi. -
Lagt fram bréf skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 17. ágúst 2022 um umferðaröryggisaðgerðir 2022. USK22080011
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 12. september 2022 um hugmyndasöfnun í Hverfið mitt 2022-2023. MSS22020075
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um Hverfissjóð Reykjavíkurborgar. MSS22040019
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um Borgin okkar 2022 – hverfin. MSS22040042
-
Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090031
-
Lögð fram greinargerð vegna styrks úr Hverfissjóði.
A) Foreldrafélag Háteigsskóla/Vorhátíð Háteigsskóla.
-
Lagðar fram til afgreiðslu umsóknir í Hverfissjóð Reykjavíkurborgar. Þessi liður fundarins er lokaður. MSS22040019
Frestað.Fylgigögn
Fundi slitið kl. 18:23
Pétur Marteinn Urbancic Tómasson Geir Finnsson
Sigfús Ómar Höskuldsson Ásdís Káradóttir
Hanna Björk Valsdóttir Þórey Björk Sigurðardóttir
Kolbrún Jarlsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
31. Fundargerð Íbúaráðs Miðborgar og Hlíða 28. september 2022.pdf