Íbúaráð Miðborgar og Hlíða - Fundur nr. 16

Íbúaráð Miðborgar og Hlíða

Ár 2021, fimmtudagur, 20. maí, var haldinn 16. fundur íbúaráðs Miðborgar og Hlíða. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur – Tjarnarbúð og með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 17:01. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011:, Margrét M. Norðdahl, Sigfús Ómar Höskuldsson, Hanna Björk Valsdóttir, Örn Þórðarson og Katrín Steingrímsdóttir. Fundinn sátu einnig Eiríkur Búi Halldórsson og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð og Hörður Heiðar Guðbjönrsson sem sat fundinn með fjarfundarbúnaði.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á fyrirkomulagi uppstillingar kjörseðils fyrir Hverfið mitt og opnað fyrir rafræna uppstillingu á vefnum betrireykjavik.is.

  2. Fram fer yfirferð verkefnastjóra Hverfið mitt í Hlíðum á hugmyndum sem íbúar hafa úr að velja við rafræna uppstillingu. 

  3. Lokað fyrir rafræna uppstillingu kjörseðils fyrir Hverfið mitt og niðurstöður kynntar. 

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 19:05

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_midborgar_og_hlida_2005.pdf