Íbúaráð Miðborgar og Hlíða - Fundur nr. 14

Íbúaráð Miðborgar og Hlíða

Ár 2021, miðvikudagur, 14. apríl, var haldinn 14. fundur íbúaráðs Miðborgar og Hlíða. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur – Tjarnarbúð og með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 17:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Margrét M. Norðdahl, Diljá Ámundadóttir, Hanna Björk Valsdóttir, Örn Þórðarson og Sigfús Ómar Höskuldsson. Fundinn sátu einnig Eiríkur Búi Halldórsson og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð og Arnar Guðmundsson, Hörður Heiðar Guðbjörnsson sem sátu fundinn með fjarfundarbúnaði.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á fyrirkomulagi uppstillingar kjörseðils fyrir Hverfið mitt í Miðborg og opnað fyrir rafræna uppstillingu á vefnum betrireykjavik.is.

  2. Fram fer yfirferð verkefnastjóra Hverfið mitt í Miðborg á hugmyndum sem íbúar hafa úr að velja við rafræna uppstillingu. 

  3. Lokað fyrir rafræna uppstillingu kjörseðils fyrir Hverfið mitt í Miðborg og niðurstöður kynntar.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 19:05

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_midborgar_og_hlida_1404.pdf