Íbúaráð Laugardals - Fundur nr. 15

Íbúaráð Laugardals

Ár 2021, mánudagur, 26. apríl, var haldinn 15. fundur íbúaráðs Laugardals. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur – Tjarnarbúð og með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 17:01. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011:, Ísak Andri Ólafsson, Katrín Atladóttir,  Kristín Elfa Guðnadóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir, María Gestsdóttir og Þórunn Steindórsdóttir. Fundinn sátu einnig Eiríkur Búi Halldórsson og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð og Aðalbjörg Traustadóttir sem sat fundinn með fjarfundarbúnaði.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á fyrirkomulagi uppstillingar kjörseðils fyrir Hverfið mitt og opnað fyrir rafræna uppstillingu á vefnum betrireykjavik.is.

  2. Fram fer yfirferð verkefnastjóra Hverfið mitt í Laugardal á hugmyndum sem íbúar hafa úr að velja við rafræna uppstillingu. 

  3. Lokað fyrir rafræna uppstillingu kjörseðils fyrir Hverfið mitt í Laugardal og niðurstöður kynntar. 

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 19:05

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_laugardals_2604.pdf