Íbúaráð Kjalarness - Fundur nr. 15

Íbúaráð Kjalarness

Ár 2021, miðvikudagur 24. mars, var haldinn 15. fundur íbúaráðs Kjalarness. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjarvíkur - Sólrúnarbúð með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 17.01. Viðstödd var Sigrún Jóhannsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, Guðni Ársæll Indriðason og Björgin Þór Þorsteinsson. Fundinn sátu einnig Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð og Eiríkur Búi Halldórsson og Ingibjörg Þ. Sigurþórsdóttir sem sat fundinn með fjarfundarbúnaði.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á fyrirkomulagi uppstillingar kjörseðils fyrir Hverfið mitt Kjalarnesi og opnað fyrir rafræna uppstillingu á vefnum betrireykjavik.is.

  2. Fram fer yfirferð verkefnastjóra Hverfið mitt á hugmyndum sem íbúar á Kjalarnesi hafa úr að velja við rafræna uppstillingu.

  3. Lokað fyrir rafræna uppstillingu kjörseðils fyrir Hverfið mitt á Kjalarnesi og niðurstöður lagðar fram.

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 19:05

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_kjalarness_2403.pdf