Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis - Fundur nr. 53

Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis

Ár 2024, þriðjudaginn 22. október, var haldinn 53. fundur íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis. Fundurinn var haldinn í Norðurmiðstöð og hófst kl. 16.34. Eftirtaldir fulltrúar voru viðstaddir: Birkir Ingibjartsson, Bjarney Kristín Ólafsdóttir, Guðrún Elísabet Ómarsdóttir, Ívar Orri Aronsson og Sigurður Lúðvík Stefánsson. Fundinn sátu einnig Arna Hrönn Aradóttir og Heimir Snær Guðmundsson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á verkefnum samgöngusáttmála í borgarhlutanum. MSS22090034

    Þorsteinn R. Hermannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    - Kl. 16.40 tekur Friðjón R. Friðjónsson sæti á fundinum. 

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. október 2024, vegna samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs á tillögu íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis um lækkun hámarkshraða á Suðurlandsbraut. MSS23090113

    Fylgigögn

  3. Lögð fram umsögn íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis, dags. 1. október 2024 um skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Borgarspítalareit. USK24050386

    Fylgigögn

  4. Lögð fram umsögn íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis um skipulagslýsingu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Safamýri-Álftamýri (Framsvæðið). USK24050280

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 18. september 2024, um að opið er fyrir umsóknir í Hverfissjóð Reykjavíkurborgar frá 15. september til 15. október. MSS24030095

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 25. september 2024, um breytingar á úthlutunarreglum Hverfissjóðs Reykjavíkurborgar. MSS22020161

    Fylgigögn

  7. Fram fer umræða um málefni hverfisins. MSS22090034 

Fundi slitið kl. 18.09

Birkir Ingibjartsson Ívar Orri Aronsson

Friðjón R. Friðjónsson Sigurður Lúðvík Stefánsson

Guðrún Elísabet Ómarsdóttir Bjarney Kristín Ólafsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis frá 22. október 2024