Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis - Fundur nr. 17

Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis

Ár 2021, fimmtudagur, 6. maí, var haldinn 17. fundur íbúaráðs Háaleiti og Bústaða. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur – Tjarnarbúð og með fjarfundarbúnaði og hófst kl. 17:01. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitastjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011:, Dóra Magnúsdóttir, Gústav Adolf Bergmann, Guðrún Elísabet Ómarsdóttir og Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir. Fundinn sátu einnig Eiríkur Búi Halldórsson og Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir sem ritaði fundargerð og Unnur Halldórsdóttir sem sat fundinn með fjarfundarbúnaði.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á fyrirkomulagi uppstillingar kjörseðils fyrir Hverfið mitt og opnað fyrir rafræna uppstillingu á vefnum betrireykjavik.is.

  2. Fram fer yfirferð verkefnastjóra Hverfið mitt í Háaleiti og Bústöðum á hugmyndum sem íbúar hafa úr að velja við rafræna uppstillingu. 

  3. Lokað fyrir rafræna uppstillingu kjörseðils fyrir Hverfið mitt og niðurstöður kynntar. 

    Fylgigögn

Fundi slitið klukkan 19:05

Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
ibuarad_haleitis-_og_bustada_0605.pdf